Húsaleiga ehf. á þrjár fasteignir, tvær við Funahöfða í Reykjavík og eina að Dalshrauni í Hafnarfirði.
Í húsunum eru til leigu herbergi og stúdíóíbúðir til lengri eða skemmri tíma.

Lágmarks leigutími er einn mánuður og er gagnkvæmur uppsagnarfrestur mánuður og miðast við mánaðamót.

Í upphafi leigutíma greiðir leigutaki einn mánuð í tryggingu og einn mánuð fyrirfram. Tryggingin er endurgreidd við lok leigutíma að því gefnu að leigðu herbergi sé skilað í sambærilegu ástandi og þegar leigutaki tók við því.

Í öllum húsunum er umsjónarmaður sem býr á staðnum og sameign er þrifin þrisvar í viku.


       Húsaleiga ehf. - Funahöfða 19 - 110 Reykjavík - Sími 824 4535